Reykjanesbraut (41), Kaldárselsvegur - Krýsuvíkurvegur - Eftirlit (EES útboð)
Fyrri opnunarfundur tilboða í eftirlit fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnafirði milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar. Auk þess eru innifalið í útboðinu eftirlit með gerð nýrrar vegbrúar yfir Strandgötu, gerð tveggja göngubrúa yfir Reykjanesbraut við Ásland og Þorlákstún ásamt gerð umfangsmikilla hljóðvarna við Reykjanesbraut eins og verkinu er lýst í útboðsgögnum verkframkvæmdar. Heildarlengd kaflans er um 3,2 km. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og veitufyrirtækja.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Lesið var upp hverjir skiluðu inn tilboðum en á síðari opnunarfundi, sem verður þriðjudaginn 2. apríl 2019 kl. 14:15, verða lesin upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.
Bjóðendur:
- Strendingur ehf., Hafnarfirði
- VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík
- Mannvit, Reykjavík
- Verkís hf., Reykjavík
- Hnit, verkfræðistofa, Reykjavík